Image for Article

  1. júlí 2026

Sameyki veitir ráðgjöf vegna uppsagna hjá Reykjavíkurborg

Við hjá Sameyki fylgjum nú eftir félagsfólki okkar sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í síðasta mánuði. Við leggjum mikla áherslu á að okkar fólk fái upplýsingar um réttindi sín og leiðbeiningar við næstu skref.

Við erum meðal annars að aðstoða fólk við að óska eftir rökstuðningi fyrir uppsögnum, þar sem þess er óskað, en mikilvægt er að það sé gert innan tilskilins frests sem eru 14 dagar frá uppsögn.

Við veitum einnig ráðgjöf um uppsagnarfrest, réttindi samkvæmt ráðningarsamningi og kjarasamningi, styrki úr sjóðum, gögn vegna starfsloka og önnur atriði sem geta skipt máli.

Réttindi og styrkir í uppsagnarfresti

Í uppsagnarfresti heldur þú almennt réttindum þínum samkvæmt ráðningarsamningi og kjarasamningi. Jafnframt heldur þú réttindum þínum hjá Sameyki sem fullgildur félagsmaður út uppsagnarfrest.

Við hvetjum félagsfólk okkar til að kynna sér og nýta þau réttindi og styrki sem það kann að eiga rétt á, enda geta þau skipt máli á tímum breytinga.

Annað sem gott er að hafa í huga

Gott er að geyma öll gögn sem tengjast uppsögninni, svo sem uppsagnarbréf, tölvupósta og ráðningarsamning. Ekki er ráðlegt að skrifa undir starfslokasamning eða önnur gögn án þess að fá ráðgjöf fyrst.

Einnig er mikilvægt að kanna stöðu atvinnuleysisbóta, skráningu hjá Vinnumálastofnun og hvaða áhrif starfslok geta haft á réttindi, greiðslur og sjóðsaðild.

Sjá upplýsingar fyrir atvinnuleitendur.

Samskiptaleiðir og aðstoð