Orlofskostir

Sameyki leggur metnað sinn í að bjóða félagsfólki sínu að dvelja í vönduðum orlofshúsum sem víðast um landið.

Skelltu þér í orlof!

Sameyki býður félagsmönnum fjölda vandaðra orlofshúsa, innanlands og erlendis. Öll aðgengileg á Orlofshúsavef Sameykis, þar sem þú leigir hús, kaupir gjafabréf og nýtir afslætti með einfaldri innskráningu með rafrænum skilríkjum.

Úthlutunartímabil

Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabili sótt er um, kerfið raðar umsóknum eingöngu eftir punktastöðu félagsfólks.

Niðurstöður úthlutunar eru sendar í tölvupósti með tilgreindum greiðslufresti.

Upplýsingar um úthlutanir

Vetur innanlands og á Los Arenales

Opnað verður fyrir bókanir á tímabilinu frá 4. janúar til 27. maí 2027, að páskum undanskildum, þann 14. september kl. 13:00. Þá gildir „fyrstur kemur fyrstur fær.“

Bókanir fara fram á Orlofshúsavefnum.

Tenerife vetur 2027

Opnað fyrir umsóknir fyrir tímabilið 21. janúar–27. maí 2027, að páskum undanskildum, þann 1. september kl. 09:00.

Umsóknarfrestur rennur út 8. september kl. 23:59. Úthlutun fer fram samkvæmt punktakerfi 11.september. Greiðslufrestur fyrir þá sem fá úthlutað er til og með 18. september.

Þann 21. september kl. 13 geta þeir sem sóttu um í úthlutuninni og fengu synjun bókað viku á Tenerife ef eitthvað er enn laust, þá gildir „fyrstur kemur fyrstur fær.“

Svo þann 22. september kl. 13 opnar fyrir bókanir fyrir allt félagsfólk ef eitthvað er enn laust, þá gildir einnig „fyrstur kemur fyrstur fær.“

Þeir sem leigðu íbúðina á Tenerife 2026 koma ekki til greina í úthlutun 2027.

Gjafabréf og ávísanir

Hægt er að kaupa gjafabréf á Orlofshúsavef Sameykis sem veita afslátt þegar keyptur er flugmiði. Hér er hægt að kynna sér allt um það.
Nánar um ávísanir og gjafabréf

Veiði og útilega

Félögum í Sameyki býðst að kaupa útilegu- og veiðikort með afslætti.
Veiði og útilega

Orlofssjóður

Orlofssjóður ber ábyrð á rekstri og uppbyggingu orlofseigna félagsins auk framboðs á öðrum orlofsmöguleikum.