- maí 2026
Steinunn Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Sameykis og bætist í okkar öfluga hóp í sumar. Síðustu tíu ár starfaði hún sem upplýsingafulltrúi hjá Landsneti en gegndi þar áður sama hlutverki hjá Hafnarfjarðarbæ. Steinunn býr því yfir mikilli reynslu af upplýsinga- og samskiptamálum sem mun nýtast okkur vel.
Við hjá Sameyki tryggjum réttindi og velferð um 14 þúsund félagsmanna um land allt og opin og skýr upplýsingamiðlun til þeirra og samfélagsins er mikilvægari nú en nokkru sinni fyrr.
Við bjóðum Steinunni velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins.