Image for Article

  1. október 2026

Stofnun ársins 2026 er farin af stað

Mannauðs- og starfsumhverfiskönnunin Stofnun ársins 2026 er byrjuð að berast félagsfólki Sameykis. Gallup sendir könnunina út með tölvupósti en póstur berst til allra á næstu dögum.

Tilgangur könnunarinnar er að styrkja starfsumhverfi starfsfólks í almannaþjónustu. Hún veitir ítarlegar upplýsingar um stöðu mála, þ.e. styrkleika og áskoranir í starfsumhverfinu sem nýta má til umbótastarfs á vinnustaðnum.

Í könnuninni er meðal annars spurt um stjórnun, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika, sjálfstæði í starfi, jafnrétti og ánægju í starfi. Niðurstöðurnar gefa vinnustöðum mikilvægar upplýsingar sem hægt er að nýta til umbóta.

Við hvetjum ykkur til að taka þátt. Með því að svara könnuninni leggur þú þitt af mörkum til að draga upp skýra mynd af starfsumhverfinu á þínum vinnustað, hvað gengur vel og hvar má gera betur.

Til þess að vinnustaður komist inn í niðurstöður könnunarinnar þarf að nást ákveðið svarhlutfall. Hvert svar skiptir því máli.

Hægt er að svara könnuninni á íslensku, ensku og pólsku.

Fylgstu með í tölvupóstinum þínum næstu daga og taktu þátt.

Hér getur þú lesið um Stofnun ársins.