- maí 2026
Nú er verið að fara af stað með könnunina Sveitarfélag ársins sem er fyrir félagsfólk Sameykis og annarra félaga innan BSRB sem starfa hjá sveitarfélögum (fyrir utan Reykjavíkurborg). Þetta er fimmta árið sem könnunin er gerð.
Könnunin verður send til félagsfólks í dag 12. maí, með netpósti. Gallup sendir út slóðina á könnunina.
Það er mikilvægt að þið gefið ykkur tíma til þess að svara könnuninni því það þarf að ná að lágmarki að nást 35% svarhlutfalli til þess að sveitarfélag komist inn á lista, en best er þó að fá enn hærra hlutfall það gerir trúverðugleika könnunarinnar meiri.
Eins og fyrri ár verða sjö heppnir þátttakendur dregnir út að könnun lokinni og fá þeir peningaupphæð 15.000 kr. í verðlaun.
Á næstu dögum verður hægt að nálgast tengil á könnunina á mínum síðum Sameykis fyrir félagsfólk sem að einhverjum sökum hefur ekki fengið sent boð til að svara könnuninni.