- apríl 2026
Tímarit Sameykis er nú komið út. Við vekjum athygli á að til að fá tímaritið sent í pósti þarf að skrá sig á póstlista.
Í þessu öðru tölublaði ársins er fjallað ítarlega um Stofnun ársins 2025, árangur vinnustaða í mannauðskönnuninni og mikilvægi góðs starfsumhverfis. Menntaskólinn á Tröllaskaga var stigahæstur allra í könnuninni og rætt er við Láru Stefánsdóttur skólameistara um starfsanda, frumkvæði og nútímalega kennsluhætti.
Einnig eru viðtöl við öfluga stjórnendur á vinnustöðum sem náðu góðum árangri í könnuninni; Rannveigu Önnu Ólafsdóttur leikskólastjóra í Gullborg, Bergljótu Borg framkvæmdastjóra Glóar stuðningsfélags og Sólveigu Guðrúnu Hannesdóttur rektor Menntaskólans í Reykjavík, sem var hástökkvari ársins.
Í blaðinu er fjallað um aðalfund Sameykis 2026, þar sem samþykkt var sameining Sameykis og Póstmannafélags Íslands, auk lagabreytinga og ályktana um áminningarskyldu opinberra starfsmanna og efnahagsstefnu stjórnvalda. Þá eru trúnaðarmenn ársins 2025, þau Ottó Hörður Guðmundsson og Kristbjörg H. Guðmundsdóttir, heiðruð fyrir störf sín.
Sérstök umfjöllun er um heimilisofbeldi og áhrif þess á vinnumarkaðinn. Rætt er við Dagnýju Aradóttur Pind lögfræðing hjá BSRB og Lindu Dröfn Gunnarsdóttur framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins um hvernig samfélagið og verkalýðshreyfingin geta stutt betur við þolendur.
Þá fjallar Jens Näsström vinnusálfræðingur um skuggahliðar metnaðargirninnar, Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kallar eftir því að hætt verði að kalla eftir veikindavottorðum vegna skammtímaveikinda og Harpa Hrund Berndsen skrifar um tengsl starfsumhverfis og veikindafjarvista hjá Reykjavíkurborg.