Image for Article

  1. nóvember 2026

Trúnaðarmenn ræddu uppsagnir, stofnanasamninga og næstu kjarasamninga

Trúnaðarmenn hjá ríki og sjálfseignarstofnunum komu saman á fundi í síðustu viku þar sem farið var yfir stöðu uppsagna og fækkunar starfa, stofnanasamninga og undirbúning kjarasamninga 2028. Gervigreind var einnig til umræðu, áhrif hennar á störf framtíðarinnar og ímynd opinberra starfsmanna.

Uppsagnir og fækkun starfa voru ofarlega á baugi og meðal annars rætt um nauðsyn þess að Sameyki hefði góða yfirsýn yfir þróunina og þær breytingar sem eiga sér stað á vinnustöðum félagsfólks okkar. Einnig var farið yfir stöðu stofnanasamninga, þær áskoranir sem fylgja samningavinnu á tímum aðhalds og undirbúning næstu kjarasamninga.

Trúnaðarmenn voru hvattir til að miðla upplýsingum frá sínum vinnustöðum og taka virkan þátt í mótun þeirra verkefna sem fram undan eru hjá félaginu.