Image for Article

  1. október 2026

Upplýsingar um réttindi og stuðning vegna uppsagna

Réttindi og stuðningur

Síðustu vikur hafa verið þungar fyrir margt af okkar félagsfólki. Uppsagnir og skipulagsbreytingar hafa áhrif á fólk.

Mikilvægt er að félagsfólk okkar kynni sér réttindi sín og leiti ráðgjafar ef spurningar vakna.

Í uppsagnarfresti heldur starfsfólk áfram réttindum sínum samkvæmt ráðningarsamningi og kjarasamningi. Jafnframt heldur það réttindum sínum hjá Sameyki sem fullgildir félagsmenn út uppsagnarfrestinn.

Mikilvægt að hafa í huga

  • Laun, orlofsávinnsla, lífeyrisiðgjöld og önnur starfskjör haldast út uppsagnarfrestinn.
  • Réttur til styrkja og þjónustu úr sjóðum félagsins helst, meðal annars vegna náms, starfsþróunar, heilsu, líkamsræktar eða endurhæfingar.
  • Félagsmenn geta áfram nýtt sér þjónustu og fríðindi félagsins meðan á uppsagnarfresti stendur.
  • Mikilvægt er að varðveita öll gögn sem tengjast uppsögninni, þar á meðal uppsagnarbréf og önnur samskipti.

 

Við veitum einnig ráðgjöf um uppsagnarfrest, réttindi samkvæmt kjarasamningum, mögulegan rökstuðning fyrir uppsögn og önnur atriði sem tengjast starfslokum.

Samskiptaleiðir og aðstoð

Þú getur:

 

Við hvetjum allt það félagsfólk sem málið snertir til að hafa samband við okkur. Við erum hér fyrir ykkur og tilbúin til að veita upplýsingar, ráðgjöf og stuðning.