Image for Article

  1. október 2026

Uppsagnir, samningsumboð og framtíð starfsmats rædd á trúnaðarmannafundi

Trúnaðarmannaráð Sameykis hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélögum fundaði í morgun, miðvikudaginn 14. október.

Á fundinum var meðal annars kynntur nýr aðaltrúnaðarmaður Sameykis hjá Reykjavíkurborg, farið yfir flutning samningsumboðs borgarinnar til Sambands íslenskra sveitarfélaga og rætt um stöðu og framtíð starfsmatskerfisins.

Jafnframt var fjallað um undirbúning næstu kjarasamninga og fyrirhugaðar hagræðingaraðgerðir hjá Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum.

Fundir eins og þessir eru mikilvægur liður í að tryggja öflugt upplýsingaflæði, efla samstarf trúnaðarmanna og skapa sameiginlegan skilning á þeim verkefnum og áskorunum sem fram undan eru.

Ljósmynd: 
Guðmundur Freyr Sveinsson sviðsstjóri kjara- og þjónustusviðs fór yfir stöðuna í kjaramálum.