- febrúar 2026
Á málþinginu hélt Jens Näsström, sálfræðingur og stofnandi Ambition Profile, erindi um streitu og kulnun þar sem hann lagði áherslu á að hefðbundnar aðferðir við að greina streitu nái ekki yfir rót vandans því að persónuleikaþættir geti haft mikil áhrif á kulnun í starfi og vellíðan starfsfólks. Jens lagði til fjölbreyttari nálgun sem tekur tillit til einstaklinga og samfélagslegra þátta.
Torfi Már Jónsson, sálfræðingur hjá Muni sálfræðistofu, fjallaði um muninn á streitu og klínískum kvíða og undirstrikaði mikilvægi þess að draga ekki alla veikindafjarveru undir einn hatt. Hann benti á að markmiðið sé ekki að refsa starfsfólki vegna fjarvista heldur að bregðast snemma við, hvatti til opinna samtala og gera stjórnendum kleift að stuðla að vellíðan starfsfólks.
Fram kom í erindi Hörpu Hrundar Berndsen að starfsumhverfi hefur bein áhrif á veikindafjarvistir, þar sem upplifun starfsfólks af kröfum, stjórnunarstíl og stuðningi á vinnustaðnum hefur áhrif á tíðni veikindadaga og vellíðan. Gestir málþingsins fengu yfirlit yfir rannsóknir sem sýna hvernig vinnuumhverfið mótar bæði líkamlega og sálræna heilsu.
Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, sérfræðingur í heilsueflingu hjá Reykjavíkurborg, kynnti heildræna viðverustefnu borgarinnar sem hefur það að markmiði að lágmarka fjarveru með samræmdum aðgerðum sem byggja á umhyggju, forvörnum og skýrum viðbrögðum. Hún lagði áherslu á að stjórnendur gegni lykilhlutverki í því að styðja starfsfólk og efla vellíðan á vinnustöðum.
Við hjá Sameyki vonum að málþingið skapi umræðu um hvernig megi stuðla að jákvæðu og virku vinnuumhverfi þar sem vellíðan starfsfólks er höfð að leiðarljósi.