Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Fjölmiðlatorg

Á þessari síðu höfum við safnað saman gagnlegum upplýsingum fyrir fjölmiðla s.s. merki félagsins, myndum og upplýsingum um félagið. 


Halda áfram

Sameyki stéttarfélagi í almannaþjónustu var stofnað 26. janúar 2019 við sameiningu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu.

Félagsmenn í Sameyki eru rúmlega tólf þúsund og eru 65 prósent þeirra konur og 35 prósent karlar. Félagar í Sameyki starfa í fjölbreyttum störfum í almannaþjónustu. Nokkrir stærstu vinnustaðirnir eru Landspítali, Strætó, fangelsin, Isavia, Orkuveitan, Skatturinn, leikskólar, grunnskólar og framhaldskólar, frístundamiðstöðvar og heimili, söfnin, sambýli fatlaðra, sjálfseignarstofnanir í heilbrigðisgeiranum (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu), skrifstofur sýslumannsembættanna o.fl.

Sameyki er stærst aðildarfélaga BSRB og þriðja stærsta stéttarfélagið á Íslandi. Félagssvæði Sameykis er allt landið.

 

Stjórnendur
Formaður: Þórarinn Eyfjörð - thorarinn@sameyki.is
Skrifstofustjóri: Gunnsteinn R. Ómarsson - gunnsteinn@sameyki.is

Tengiliður fjölmiðla
Kynningarfulltrúi: Axel Jón Ellenarson - axel@sameyki.is

 

Merki (logo) Sameykis
Hægt er að hlaða niður merki Sameykis á PDF sniði.

Merki Sameykis (lóðrétt rautt / lóðrétt blátt)
Merki Sameykis (lárétt rautt / lárétt blátt)

 

Heitið Sameyki er sjaldgæft en hljómfagurt íslenskt orð sem er gamalt í málinu. Orðið sameyki merkir teymi (e. team) og var sérstaklega notað sem slíkt áður en orðið teymi varð til í íslensku. Orðið sameyki stendur þannig fyrir samvinnu en er einnig notað yfir það þegar dýr eða vélar eru tengd saman til að draga þungt hlass. Merkingin vísar í styrk, samstarf og samstöðu og er lýsandi fyrir sameinað félag.

Sameyki var ein af 291 hugmynd sem send voru inn í samkeppni um nafn og höfundur þessa merkingarþrungna heitis er Margrét Högnadóttir sem er trúnaðarmaður hjá Ríkisskattstjóra.

 

Ljósmyndir
Fjölmiðlum er heimilt að nota ljósmyndirnar hér að neðan með fréttum sem tengjast myndefninu. Vinsamlegast athugið að önnur not á myndunum eru ekki heimil án leyfis frá Sameyki. Höfundur ljósmyndanna er Birgir Ísleifur Gunnarsson/BIG.

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis. Smelltu á ljósmynd til sækja.



Fánaborg Sameykis á alþjóðlegum baráttudegi launafólks 1. maí.

 

 

Fréttir

11.
júl.

Sumarlokun á skrifstofu Sameykis

Skrifstofa okkar verður lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks frá og með 22. júlí en við opnum aftur eftir verslunarmannahelgi, þriðjudaginn 6. ágúst......

Fleiri fréttir

Pistlar og greinar

19.
jún.

Rangt gefið frá upphafi

Í undirbúningi Kvennaverkfallsins síðasta haust mættu skipuleggjendur gjarnan því viðhorfi hvort raunveruleg þörf væri á slíkum mótmælum í því landi......

01.
maí

Ræða formanns 1. maí

Ágæta fundarfólk, til hamingju með baráttudaginn okkar 1. maí 2024! Það er stutt síðan stéttarfélögin innan ASÍ samþykktu nýja kjarasamninga......

29.
apr.

Aðgerðapakki

Í kynningu á aðgerðum stjórnvalda, sem tengdust undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, kom fram að ríkisstjórnin og Samband íslenskra......

Fleiri pistlar

Sameyki TV

Loading video...

Loading video...