Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

4. september 2023

Sameyki óskar eftir tilboðum í orlofshús til brottflutnings

Orlofshús Sameykis nr. 1-9 á Úlfljótsvatni eru til sölu.

Um er að ræða níu orlofshús við Vesturtröð í orlofsbyggð Sameykis að Úlfljótsvatni í Grímsnes- og Grafningshreppi sem eru til sölu. Orlofshús nr. 1-6 eru 48 m2 að stærð og orlofshús nr. 7-9 eru 30 m2. Húsin eru byggð á steyptum súlum og er áfastur pallur og heitur pottur sem fylgja þeim. Nánari upplýsingar um orlofshúsin má finna hér, og á Orlofshúsvef Sameykis hér.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Sameykis fyrir kl. 14:00 þann 1. október n.k.

Sameyki áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum sem berast. Húsin skulu fjarlægð á kostnað kaupanda í síðasta lagi 1. nóvember 2023.

Allar frekari upplýsingar veitir Vilhjálmur Ólafsson, rekstrarstjóri fasteigna orlofssjóðs Sameykis, á netfangið vilhjalmur@sameyki.is eða í síma 525 8300.