2. maí 2024
Breytingar á bókunum orlofshúsa
Breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi varðandi bókanir á orlofshúsum og íbúðum Sameykis á vetrartíma.
Undanfarin ár hefur verið opnað fyrir leigu einn mánuð í einu, 5 mánuði fram í tímann innanlands og 6 mánuði fram í tímann erlendis. Þessu fyrirkomulagi hefur verið hætt og verður nú opnað fyrir leigu á vetrartíma í tvennu lagi.
Tímabil haust/vetur
Opnað verður fyrir tímabilið 23. ágúst til og með áramótunum 2. janúar
2024-2025, þann 15. maí kl. 9:00.
Tímabil vetur/vor
Opnað fyrir tímabilið 2. janúar 2025 fram að byrjun sumars
2025 þann 5. september kl. 9:00.