3. febrúar 2025
Panta þarf sérstaklega prentútgáfu af Orlofsblaði Sameykis

Orlofsblað Sameykis 2025
Við viljum vekja athygli á því að nú þarf félagsfólk að óska sérstaklega eftir að fá Orlofsblað Sameykis 2025 sent í pósti. Stjórn Sameykis tók þá ákvörðun á fundi sínum að takmarka upplag af Orlofsblaði Sameykis 2025 og því verður það ekki sent til alls félagsfólks samkvæmt félagatali eins og verið hefur. Í Tímariti Sameykis, 1. tbl. 2025, á bls. 7 sem nú er á leið til félagsfólks kemur fram að Orlofsblað Sameykis 2025 verði borið út til félagsfólks eins og verið hefur. Beðist er velvirðingar á því.
Þau sem óska eftir að fá Orlofsblað Sameykis 2025 sent í pósti verða að panta það með því að smella á hnappinn hér að neðan í fréttinni og fylla út pöntunarform; fullt nafn, heimilisfang, póstnúmer og stað.
Panta þarf í síðasta lagi 9. febrúar svo náist að dreifa því til allra áður en frestur til að sækja um orlofshúsin rennur út. Frestur til að sækja um orlofshús er frá 28. febrúar til 24. mars. Orlofstímabilið er frá 23. maí til 22. ágúst 2025 en úthlutun lýkur 28. mars nk. Dagleiguhús opna 2. apríl.
Hægt er að lesa PDF útgáfu af Orlofsblaði Sameykis 2025 hér.
Panta prentútgáfu af Orlofsblaði Smeykis 2025