Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

1. mars 2019

Trúnaðarmenn og fulltrúar Sameykis funda

Fjölmennur fundur trúnaðar- og frulltrúaráðs var í gær í Gullhömrum í Grafarholti. Fundurinn hófst með ávarpi formanns, Árna Stefáni Jónssyni á eftir því var Ágústa Hrönn Gísladóttir forstöðumaður réttindamála hjá LSR lífeyrissjóði með mjög áhugaverða kynningu á lífeyrisréttindum og breytingum sem urðu í sumar á reglum sjóðsins. Farið var yfir Kröfugerðir Sameykis í komandi kjarasamningum, en kröfugerð gagnvart Reykjavíkurborg og ríkinu eru fullunnar og unnið er að því að fullvinna kröfugerðir gagnvart öðrum viðsemjendum. Í lok fundar kom formaður BSRB, Sonja Ýr Þorbergsdóttir og fjallaði um viðræður vinnumarkaðsins við ríkissjórnina vegna komandi kjarasamninga.

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd