Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

26. ágúst 2019

Námskeið um lífeyrismál við starfslok

Boðið verður upp á námskeið um lífeyrismál við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar miðvikudaginn 18. september næst komandi. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42, 2. hæð.
Á námskeiðinu verður farið almennt yfir helstu réttindi sjóðfélaga, sýnt hvar upplýsingar um lífeyrisréttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.
Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar deildir með mismunandi réttindakerfum og er námskeiðið því skipt upp eftir því. Takmarkaður fjöldi sæta eru í boði á hvert námskeið en leitast er við að bæta við námskeiðum fari skrásetning fram úr áætluðum sætafjölda.
B deild - LsRb - LSK kl. 16.30
A deild kl. 17.30
V deild kl. 18.30
Skráning hér