10. september 2019
Mínar síður komnar í loftið
Til að komast á Mínar síður og Orlofsvef Sameykis smellir þú á lásatáknið efst í hægra horninu. Mínar síður eru viðbót sem allir félagsmenn Sameykis geta nú nýtt sér. Þar er hægt að sækja um styrki í sjóði félagsins, fylgjast með afgreiðslu þeirra og sjá hvað stendur til boða. Á síðunum er einnig hægt að uppfæra netfang og aðrar upplýsingar, enda mikilvægt að félagið hafi rétt netfang til þess að upplýsingar skili sér sem allra fyrst.