1. nóvember 2019
Viðræður halda áfram
![Viðræður halda áfram - mynd](/library/Myndir/Frettamyndir/2019/20191101_140012.jpg?proc=frontPage)
Kjaraviðræður hafa haldið áfram af fullum krafti í vikunni, síðast í gær hitti samninganefnd BSRB fulltrúa ríkissins hjá sáttasemjara til að ræða sameiginlegar kröfur aðildarfélaganna, m.a. styttingu vinnuvikuna. Í dag á Sameyki fund með ríkinu hjá sáttasemjara og einnig er fundur með samninganefndum Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga á dagskránni í dag. Þá hittust fulltrúar í samninganefndum Fríhafnarinnar og Rarik einnig í vikunni.