9. desember 2019
Páskar á Spáni
Sameyki á þrjár eignir á Spáni. Tvær íbúðir í fjölbýlishúsi við ströndina með sundlaug og tennisvelli og raðhús með sundlaugargarði.
Páskarnir eru vinsæll tími og því verður páskavikunni og nokkrum dögum að auki úthlutað sem einu tímabili (3.-13. apríl).
Hægt verður að sækja um úthlutun á orlofsvefnum okkar á www.sameyki.is til og með 5. janúar 2020.
Sjá nánari lýsingar á húsunum hér á vefsíðu Sameykis.