11. febrúar 2020
Við söfnum upplýsingum
![Við söfnum upplýsingum - mynd](/library/Myndir/absolutvision-82TpEld0_e4-unsplash.jpg?proc=frontPage)
Þessa dagana er fyrirtækið Miðlun að aðstoða okkur við að fylla upp í netfanga og símanúmera listana okkar í félagskránni. Okkur þykir nauðsynlegt að hafa þessar upplýsingar um félagsmenn okkar svo við getum auðveldar komið skilaboðum á framfæri. Við höfum heyrt það frá starfsfólki Miðlunar að félagsmenn hafa tekið hringinunum afar vel og þökkum við fyrir það.