Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

2. mars 2020

Skattframtal 2019 - frádráttur á móti styrkjum frá Sameyki

Nú er búið að opna fyrir skil á skattframtali og því minnum við félagsmenn sem fengu styrk á árinu 2019 að huga að því hvort heimilt sé að færa kostnað til frádráttar.

Styrkir úr starfsmenntunarsjóði og styrktar- og sjúkrasjóði birtast sjálfkrafa á netfamtali þeirra félagsmanna sem fengið hafa slíka styrki. Hægt er að skrá kostnað á móti námsstyrkjum sem tengjast starfi og á móti líkamsræktarstyrkjum. Frádráttur á móti námsstykjum færist í reit 149 á skattframtali og í reit 157 vegna líkamsræktarstyrkja.



Heimilt er að færa til frádráttar heilsurækt uppá kr. 60.000.- á tekjuárinu 2019.

Aðrir styrkir styrktar- og sjúkrasjóðs eru skattskyldir.

ATHUGIÐ! Þú getur nálgast upplýsingar um hvaða styrki þú hefur fengið á árinu 2019 með því að skrá þig inn á Mínar síður Sameykis og þar velur þú Mínar upplýsingar, Mínar umsóknir.

Sjá nánar um frádrátt á móti styrkjum á vef RSK.

Lokaskiladagur skattaskýrslu er 10. mars nk., en hægt verður að sækja um framlengdan frest til föstudagsins 13. mars.