5. mars 2020
Sameyki undirritar samning við Strætó
Samninganefndir Sameykis og Strætó bs. undirrituðu kjarasamning um klukkan fjögur í dag. Fyrirhugað hafði verið að ráðastí atkvæðagreiðslu um verkfall hjá starfsmönnum Strætó fyrir lok vikunnar sem nú verður ekki af. Nýundirritaður kjarasamningur verður þess í stað borinn undir atkvæði starfsmanna Strætó fljótlega.