9. mars 2020
Samið við Reykjavíkurborg
Nú rétt fyrir klukkan þrjú í nótt undirritaði Sameyki kjarasamning við Reykjavíkurborg. Með undirskriftinni er verkfalli félagsmanna sem starfa hjá Reykjavíkurborg aflýst. Samningarnir verða kynntir félagsfólki á næstu dögum og bornir undir atkvæði.