11. mars 2020
Kynning kjarasamninga
Nú er verið að skipuleggja kynningu fyrir félagsmenn á kjarasamningum við ríki, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga. Þar setur COVID-19 okkur í óvenjulega stöðu þar sem m.a. hefur verið óskað eftir því að heilbrigðisstarfsfólk forðist fjöldasamkomur, en þar á meðal eru einmitt margir félagsmenn Sameykis. Þess vegna hefur verið tekin sú ákvörðun að bjóða upp á „beina útsendingu“ frá kynningu hvers samnings. Kynningin verður sem sagt í gegnum netið og hægt verður að senda fyrirspurnir á meðan á kynningunni stendur.
Búið er að skipuleggja eftirfarandi kynningar:
- Reykjavíkurborg „bein útsending“:
- mánudagur 16. mars kl. 16:30-17:30 og
- miðvikudagur 18. mars kl. 8:30-9:30
- Ríkið „bein útsending“:
- miðvikudagur 18. mars kl. 16:00-17:00
- fimmtudagur 19. mars kl. 9:00-10:00
- Samband íslenskra sveitarfélaga „bein útsending“:
- þriðjudagur 17. mars kl. 16:30-17:30
Atkvæðagreiðsla verður auglýst nánar síðar en henni þarf að vera lokið vegna samninga við:
- Samband íslenskra sveitarfélaga mánudaginn 23. mars
- Reykjavíkurborg miðvikudaginn 25. mars
- Ríkið þriðjudaginn 31. mars