17. mars 2020
Kynning á kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Sameykis
Kynningarfundur fyrir félagsmenn sem starfa sem starfa hjá sveitarfélögum hringinn í kringum landið og taka laun samkvæmt kjarasamningi við Samband íslenskra sveitarfélaga verður 17. mars kl. 16:30. Vegna COVID-19 eru fundirnir sendir út í gegnum Zoom fjarfundakerfi og komast 500 manns á hvern fund. Neðar á síðunni má finna leiðbeiningar varðandi það hvernig tengjast á fundinum og hvernig hægt er að senda inn fyrirspurnir skriflega.
- Kynningarfundur í beinni útsendingu frá Grettisgötu 89, boðið verður upp á enska textun - ENGLISH SUBTITLES:
Þriðjudaginn 17. mars kl. 16:30-17:30,
smelltu hér til að komast inn á beina útsendingu.
Hér getur þú nálgast:
Kynningarefni frá BSRB
Í ljósi óvenjulegra aðstæðna í samfélaginu þessa dagana sem koma í veg fyrir fundi þar sem efni samninganna er kynnt félagsmönnum hefur BSRB útbúið kynningarefni fyrir þau mál sem félögin fólu bandalaginu að semja um fyrir sína hönd. Hér að neðan er hægt að smella á efnisþætti til að sjá texta og stutt kynningarmyndband. Þar má einnig finna algengar spurningar og svör við þeim. Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér þetta efni vel áður en atkvæði eru greidd um samningana.
- Stytting vinnuvikunnar í dagvinnu
- Stytting vinnuvikunnar í vaktavinnu
- Breytingar á orlofsmálum
- Skil milli vinnu og einkalífs
- Jöfnun launa milli markaða og launaþróunartrygging
- Spurt og svarað um kjarasamningana
- Kynningarglærur fyrir alla efnisflokkana
Atkvæðagreiðsla
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og Sameykis verður rafræn í gegnum Mínar síður og hefst kl. 16 þriðjudaginn 17. mars og lýkur kl. 10 mánudaginn 23. mars.
Leiðbeiningar til að tengjast fjarfundi
Þegar þú smellir á tengilinn fyrir fundinn hér að ofan þá opnast hann í vafra. Í einhverjum tilvikum gætir þú þurft að samþykkja að hlaða niður Zomm Meetings forriti og þú segir já við því. Næsta sem þú ert beðinn um er að setja inn netfangið þitt, þú gerir það og þá áttu að detta inn á fundinn.
Fyrirspurnir
Varðandi fyrirspurnir þá ætlum við að taka á móti þeim í gegnum spjall (Chat) sem hægt er að finna neðst fyrir miðju á fundarglugganum. Ef þú ferð með bendilinn neðst á skjáinn, þá birtist svört lína með nokkrum valmöguleikum þar sem þú velur „Chat“ og skrifar inn spurningu þína, sjá mynd hér að neðan. Starfsmenn Sameykis munu koma fyrirspurnum áfram til þess sem kynnir samninginn og þeim verður svarað jafnóðum eins og tími gefst til.