1. apríl 2020
Fjarnám og stafræn ráðgjöf hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt
Ýmis fjarnámskeið eru í boði hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt. Þar má nefna námskeiðin Microsoft Teams og OneDrive, Vönduð íslenska – tölvupóstar og stuttir textar, Íslenskuþjálfarinn og ýmiss tölvunámskeið. Sjá nánar hér um námsframboð.
Einnig bjóða ráðgjafar Starfsmenntar upp á stafræna náms- og starfsráðgjöf. Hafa skal samband við Sólborgu á netfangið solborg@smennt.is eða með skilaboðum á Facebooksíðunni Einstaklingráðgjöf Fræðslusetrið Starfsmennt og því er lofað að fundin verði besta leiðin til að vera í stafrænu sambandi.