22. apríl 2020
Kjarasamningur við Orkuveituna samþykktur
![Kjarasamningur við Orkuveituna samþykktur - mynd](/library/Logo/or-islenska-litur.png?proc=frontPage)
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning Sameykis og Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag og var hann samþykktur með miklum meirihluta. Já sögðu 91,55%. Nei sögðu 5,63%. Samningurinn sem undirritaður var 8. apríl 2020 er með gildistíma frá 1. apríl 2019 til 1. nóvember 2023.