8. júní 2020
Afgreiðsla styrkja yfir sumartímann
![Afgreiðsla styrkja yfir sumartímann - mynd](/library/Myndir/news-no-image.png?proc=frontPage)
Nú eru sumarleyfi starfsfólks Sameykis hafin og má gera ráð fyrir einhverjum töfum á afgreiðslu fræðslustyrkja og styrkja úr styrktar- og sjúkrasjóði.
Félagsmenn geta sótt um styrki í gegnum Mínar síður Sameykis og hengt þar við greiðslukvittanir. Mikilvægt er að á kvittunum komi fram upplýsingar um félagsmann og hvað hann er að borga fyrir. Ef um er að ræða reikning þá þarf að fylgja með kvittun á móti reikningi úr heimabanka.