20. ágúst 2020
Styrkumsóknir í starfsmenntunarsjóðum í vinnslu
Margir hafa spurt um afgreiðslu styrkumsókna í starfsmenntunarsjóðina undanfarna daga, en af þeim er það að frétta að verið er að vinna umsóknirnar. Vegna sumarleyfa voru styrkir ekki afgreiddar yfir hásumarið en nú hafa allir starfsmenn komið til baka til vinnu og sitja við að ná niður umsóknarbunkanum. Búast má við að það taki 1-2 vikur, við biðjum því fólk að bíða rólegt. en hægt er að fylgjast með vinnslu umsóknanna á Mínar síður / mínar umsóknir.