6. október 2020
BSRB húsið lokar frá hádegi í dag
Vegna hertra sóttvarnaraðgerða og fjölgun smita hefur verið ákveðið að loka BSRB-húsinu fyrir almennum heimsóknum í ótímabundinn tíma. Lokunin tekur gildi á hádegi í dag. Nú þegar höfum við skipt starfsmannahópnum upp í tvo hópa og vinna hóparnir til skiptis heiman frá sér.
Í þeim tilfellum þar sem félagsfólk þarf nauðsynlega að hitta starfsmann er hægt að hringa á undan sér og starfsmaður hleypir gestinum inn, gestir þurfa að bera grímu og hanska. Öll erindi afgreiðum við í gegnum síma og tölvupóst. Aðalnúmer Sameykis er 525 8330 og hér má finna tölvupóstföng starfsmanna.
Við vonumst við til þess að þetta ástandi standi í skamman tím. En munum að því betur sem við sjálf hugum að sóttvörnum og erum varkár, því fyrr losnum við út úr þessu ástandi.