13. nóvember 2020
Liðkað um leigu í orlofshúsum
Ákveðið hefur verið að opna fyrir leigu alla vikuna í orlofshúsum Sameykis frá 16. nóvember.
Sameyki hefur gengið nokkuð lengra í varúðarráðstöfunum en önnur stéttarfélög, með í því að loka fyrir leigu virka daga vegna Covid 19.
Við minnum þó á að áfram er óheimilt að nýta orlofshúsin til sóttkvíar. Leigjandi sem nýtir orlofshús skal þrífa sérstaklega vel eftir sig með sápu og sótthreinsi á snertiflötum í lok dvalar. Afbókanir eru endurgreiddar. Ákvörðun þessi stendur þar til annað verður ákveðið.