18. nóvember 2020
Desemberuppbót 2020
Starfsmaður sem er í starfi fyrstu viku nóvembermánaðar fær greidda desemberuppbót miðað við fullt starf tímabilið frá 1. janúar til 31. október.
Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamningsins og skal hún greidd út eigi síðar en 15. desember 2020.
Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall, sjá nánar í viðkomandi kjarasamningi. Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé.
Tímavinnufólk þarf að hafa skilað 1504 dagvinnustundum á tímabilinu 1. janúar til 31. október til að fá 100% desemberuppbót. Tímavinnustarfsmaður sem vinnur færri klukkustundir á tímabilinu fær greitt hlutfallslega samkvæmt því.
Desemberuppbót | 2020 |
Ás styrktarfélag | 103.100 kr. |
Faxaflóahafnir |
108.600 kr. |
Félagsbústaðir |
134.236 kr. |
Fríhöfnin ehf |
94.000 kr. |
Innheimtustofnun sveitarfélaga |
118.750 kr. |
Isavia ohf |
94.000 kr. |
Klettabær |
103.100 kr. |
Orkuveitan |
108.600 kr. |
Rarik ohf |
108.600 kr. |
Reykjavíkurborg |
103.100 kr. |
Ríkið |
94.000 kr. |
Ríkisútvarpið |
94.000 kr. |
Samband íslenskra sveitarfélaga |
118.750 kr. |
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) | 94.000 kr. |
Skálatún |
118.750 kr. |
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins |
169.585 kr. |
Strætó bs. |
108.600 kr. |
Vinakot |
103.100 kr. |