14. janúar 2021
Opnað fyrir umsóknir í íbúðir á Spáni í sumar
Nú geta félagsmenn sótt um að komast í orlofshús á Spáni Sumarið 2021. Sameyki á þrjár eignir á Spáni. Parhús við Samara í Quesada, Penthouse íbúð og íbúð á fyrstu hæð í sama húsi við Los Arelanes ströndina.
Hægt er að sækja um sumarúthlutun í Orlofsíbúðir á Spáni fram til miðnættis 1. febrúar 2021 á orlofsvef
- Umsóknarfrestur til miðnættis 1. febrúar 2021
- Úthlutað er 2. febrúar 2021
- Úthlutunartímabil er frá 28. maí til 27. ágúst 2021
- Ein vika per félagsmann
- Skiptidagar eru föstudagar
- Verðið á viku er frá 55.000 – 65.000 ásamt 40 punktum
Félag í Lífeyrisdeild geta ekki sótt um íbúðir á Spáni frá 28. maí til 27. ágúst 2021, en hafa sama rétt og aðrir utan úthlutunartíma.