Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

4. febrúar 2021

Hengir af sér á greinar trjánna

Elín Helga Sankó, heilbrigðisgagnafræðingur. Ljósmynd/Axel Jón

Í fyrsta tölublaði Sameykis sem fer í póst á morgun til félagsmanna er viðtal við Elínu Helgu Sankó, heilbrigðisgagnafræðing, á LSH í Fossvogi. Ræddi Elín Helga um störf sín á spítalanum, álagið sem fylgir starfinu ásamt fleiru.

„Vegna þess að álagið hérna á deildinni varð eiginlega ómannlegt. Starfsfólk veiktist, hingað komu sjúklingar á gjörgæsluna með COVID-19. Hér var öllu umturnað. Ég fór að vinna heiman frá, það er svo skrýtið að segja frá því, en við það lengdist vinnudagurinn minn um margar klukkustundir á dag. Ég kveikti á tölvunni klukkan hálf sjö á morgnana og slökkti jafnvel ekki á henni fyrr en hálf ellefu á kvöldin. Mér fannst erfitt að vera ekki í beinum tengslum við samstarfsfólkið, einskonar sektarkennd kom yfir mig að vera ekki inni á spítalanum, leið eins og liðhlaupa að vinna í örygginu heima. Svo kom þessi tilfinning um hvort maður væri að trufla samstarfsmenn sína með því að hringja í þá. Maður var að berjast við vonda samvisku eiginlega. Þetta var og hefur verið skrýtið ástand.“ segir Elín.

Elín segir að hún noti þá aðferð að fara í göngutúra til að slaka á þegar álagið er mikið í starfinu á spítalanum og þá hengir hún gjarnan erfiðleikana á greinarnar hér og þar á leið sinni.

 

Á Meðal efnis í næsta tölublaði Sameykis:

 

Datt í lukkupottinn – Guðrún Magnea Guðmundsdóttir var heldur betur heppin þegar hún var dregin út í leiknum sem Sameyki efndi til vegna styttingu vinnuvikunnar á Netinu

Baráttan fyrir betri kjörum – Í leiðara blaðsins fjalla formenn Sameykis m.a. um það sem framundan er hjá Sameyki; stytting vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki.

Lausnin á atvinnuleysinu – Í grein Ólafs Margeirssonar, doktors í hagfræði fjallar hann um atvinnuleysi á Íslandi, atvinnuframboðstryggingu og borgaralaun.

Skemmtilegt fólk – Viðtal við Nökkva Elíasson, verkstjóra í flutninga- og rúmaþjónustudeild LSH í Fossvogi.

Alltaf á vaktinni – Viðtal við öryggisvörð á LSH í Fossvogi, Guðmund Ólaf Ingólfsson.

„Halló, halló! Þú ert á mjút Guðmundur!“  Fjarfundir hafa þróast hratt og fólk tekið fjarfundatækni ört í sína þjónustu. Í viðtali útskýra Svava Björk Ólafsdóttir og Hafdís Huld Björnsdóttir hjá Rata málið fyrir lesendum.

Fræðslustyrkir og nýjar úthlutunarreglur – Nú geta allir félagsmenn Sameykis sótt um starfsmenntunarstyrki og starfsþróunarstyrki að því gefnu að þeir uppfylli lágmarksskilyrði. Grein eftir Jóhönnu Þórdórsdóttur, fræðslustjóra Sameykis.

Gott að vita – Námskeið á vorönn eru á sínum stað í blaðinu.

Rétt fyrir sólarupprás – Baldur Vignir Karlsson, formaður Háskóladeildar Sameykis ritar pisti.

Heldurðu jafnvægi á stafræna hæfnihjólinu? – Guðfinna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Starfsmenntar fjallar í áhugaverðri grein um sjálfspróf, viðmiðunarpróf um stafræna hæfni.

Kæru félagar – Ingibjörg Óskarsdóttir, formaður lífeyrisdeildar Sameykis fer yfir síðasta ár og það sem fram undan er hjá lífeyrisdeildinni.

Vinningshafi krossgátunnar – Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir sem starfar á fréttastofu RÚV vann helgi í orlofshúsi Sameykis.