Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. febrúar 2021

„Halló, halló! Þú ert á mjút Guðmundur!“

Hafdís Huld Björnsdóttir og Svava Björk Ólafsdóttir hjá Rata. Ljósmynd/BIG

Í nýjasta blaði Sameykis sem er á leið í pósti til félagsmanna er leitað ráð við hvernig best er að bera sig að í fundarhaldi á Netinu.

Oft heyrir maður stjórnanda á fjarfundum kveðja sér hljóðs með þessum hætti; „Halló, halló! Þú ert á mjút! Þú þarft að stilla þig á unmjút, Guðmundur!“

Fjarfundir hafa þróast hratt og fólk tekið fjarfundatækni ört í sína þjónustu. Fyrirtæki hafa orðið til sem veita þjónustu og þekkingu varðandi fjarfundarbúnað og notkun hans. Stundum sjást fundargestir sinna heimilisstörfum um leið og þeir eru á fjarfundum; ryksuga, hleypa hundinum út, næra sig og þar fram eftir götunum. Þess vegna langaði okkur hjá Sameyki að vita hvort hægt sé að temja sér einhverjar umgengnisreglur á slíkum fundum.

Við leituðum því ráða hjá Hafdísi Huld Björnsdóttur og Svövu Björk Ólafsdóttur um þátttöku á fundum og námskeiðum á Netinu. Þær eru sérfræðingar í framkomu á fjarfundum og í verkefnastjórnun ásamt fleiru í eigin fyrirtæki sem stofnað var í janúar 2020, rétt áður en COVID-19 faraldurinn skall á landinu. Fyrirtækið ber heitið RATA og er staðsett í húsi Grósku í Vatnsmýrinni.

 

Á Meðal efnis í næsta tölublaði Sameykis:

Datt í lukkupottinn – Guðrún Magnea Guðmundsdóttir var heldur betur heppin þegar hún var dregin út í leiknum sem Sameyki efndi til vegna styttingu vinnuvikunnar á Netinu

Baráttan fyrir betri kjörum – Í leiðara blaðsins fjalla formenn Sameykis m.a. um það sem framundan er hjá Sameyki; stytting vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki.

Lausnin á atvinnuleysinu – Í grein Ólafs Margeirssonar, doktors í hagfræði fjallar hann um atvinnuleysi á Íslandi, atvinnuframboðstryggingu og borgaralaun.

Hengir af sér á greinar trjánna – Viðtal við Elínu Helgu Sankó, heilbrigðisgagnafræðing sem starfar á Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi með starfsstöð á gjörgæsludeild.

Skemmtilegt fólk – Viðtal við Nökkva Elíasson, verkstjóra í flutninga- og rúmaþjónustudeild LSH í Fossvogi.

Alltaf á vaktinni – Viðtal við öryggisvörð á LSH í Fossvogi, Guðmund Ólaf Ingólfsson.

Fræðslustyrkir og nýjar úthlutunarreglur – Nú geta allir félagsmenn Sameykis sótt um starfsmenntunarstyrki og starfsþróunarstyrki að því gefnu að þeir uppfylli lágmarksskilyrði. Grein eftir Jóhönnu Þórdórsdóttur, fræðslustjóra Sameykis.

Gott að vita – Námskeið á vorönn eru á sínum stað í blaðinu.

Rétt fyrir sólarupprás – Baldur Vignir Karlsson, formaður Háskóladeildar Sameykis ritar pisti.

Heldurðu jafnvægi á stafræna hæfnihjólinu? – Guðfinna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Starfsmenntar fjallar í áhugaverðri grein um sjálfspróf, viðmiðunarpróf um stafræna hæfni.

Kæru félagar – Ingibjörg Óskarsdóttir, formaður lífeyrisdeildar Sameykis fer yfir síðasta ár og það sem fram undan er hjá lífeyrisdeildinni.

Vinningshafi krossgátunnar – Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir sem starfar á fréttastofu RÚV vann helgi í orlofshúsi Sameykis.