Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

2. mars 2021

Náms- og starfsráðgjöf hjá Starfsmennt

Ráðgjafar Starfsmenntar bjóða öllum félagsmönnum Sameykis upp á náms- og starfsráðgjöf þeim að kostnaðarlausu.

Sameyki vill vekja athygli félagsfólks á því að hægt er að panta viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa Starfsmennt. Þessi þjónusta er á sviði símenntunar og starfsþróunar og nýtist öllum, óháð aldri eða stöðu. Markmið þjónustunnar er að efla vitund einstaklinga um styrkleika sína, viðhorf og áhuga þannig að þeir geti notið sín í námi og starfi.

Ráðgjafar Starfsmenntar bjóða öllum félagsmönnum Sameykis upp á náms- og starfsráðgjöf þeim að kostnaðarlausu. Því liggur beinast við að spyrja hvort þú viljir þiggja að ...

    þróa hæfni þína í starfi?

    ræða líðan þína í vinnunni?

    skoða möguleika og fá upplýsingar um nám?

    fá aðstoð við að setja þér markmið?

    fá stuðning við að mæta nýjum áskorunum?

    fá stuðning við að takast á við breytingar?

Hægt er að koma og hitta ráðgjafa á skrifstofu Starfsmenntar eða óska eftir fjarfundi á Teams eða Zoom. Skráðu þig hér og þá verður haft samband og fundinn tími fyrir viðtal sem hentar þér.