24. mars 2021
Aðalfundur Sameykis eingöngu í gegnum fjarfundarbúnað
Vegna sóttvarnaraðgerða ríkisstjórnarinnar verður aðalfundur Sameykis sem haldinn er á morgun 25. mars klukkan 16:00 eingöngu í gegnum netið í fjarfundarbúnaði. Allir þeir sem skráðu sig og ætluðu að koma á aðalfundinn á Hilton, verður boðið að taka þátt í gegnum netið. Þeim verður sendur hlekkur með boði á fundinn og þurfa ekki að skrá sig aftur.
Skráningu á aðalfundinn lýkur klukkan 14:00 á fundardegi.