Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

29. júní 2021

Veikindi í orlofi

Nú eru sumarfrí hjá mörgu félagsfólki Sameykis að bresta á 1. júlí. Við viljum minna á að geti starfsmaður ekki vegna veikinda farið í orlof skal hann tilkynna yfirmanni sínum strax um veikindi eða slys og framvísa læknisvottorði. Svo að veikindi í orlofi séu greiðsluskyld af atvinnurekanda er ekki nægilegt að læknir viðkomandi votti að um veikindi sé að ræða. Veikindi í orlofi þurfa að vera með þeim hætti að ekki sé hægt að njóta orlofsins vegna þeirra.

Að uppfylltu framangreindu getur starfsmaður þá krafist orlofs á öðrum tímum en orlofstímabilinu. Í slíkum tilvikum er heimilt að flytja ótekið orlof til næsta árs.