Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

5. ágúst 2021

Þolendur hika við að leita sér aðstoðar

Atvinnurekendum ber einnig að bregðast hratt við kvörtunum og tryggja góða líðan þess sem kvartar, hvort sem athugun leiðir í ljós að um áreiti hafi verið að ræða eða ekki.

Mikilvægt er að bæta þekkingu á vinnustöðum, bæði hjá starfsfólki og yfirmönnum, á kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum svo hægt sé að vinna markvisst að forvörnum og bregðast rétt við ef atvik koma upp. Allt of algengt er að þolendur kynferðislegrar áreitni og ofbeldis á vinnustöðum hiki við að leita sér aðstoðar.

Það er grundvallaratriði að starfsfólk upplifi öryggi á vinnustað og á viðburðum tengdum vinnunni enda á launafólk skilyrðislausan rétt á að búa við gagnkvæma virðingu í samskiptum við yfirmenn, samstarfsfólk og viðskiptavini eða notendur þjónustu á vinnustaðnum.


Starfsfólk njóti skylirðislausrar verndar
Starfsfólk á rétt á því að njóta skilyrðislausrar verndar fyrir kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi og ef brotið er gegn þeim rétti á það að geta leitað til síns yfirmanns til að fá úrlausn sinna mála. Vinnustaðir þurfa að móta sér verkferla til að taka á slíkum málum og setja þá í gang þegar upp koma tilvik sem kvartað er yfir. Beri kvartanir til yfirmanns ekki árangur getur starfsfólkið leitað til síns stéttarfélags sem í framhaldinu aðstoðar viðkomandi við að leita réttar síns.

Bæði einstaklingar og vinnustaðir geta glímt við ýmiskonar afleiðingar af áreitni og ofbeldi. Einstaklingarnir geta upplifað verri heilsu, streitu, þunglyndi, niðurlægingu og pirring, auk þess sem áreitnin og ofbeldið geta haft í för með sér tekjutap fyrir þolendurna.

Atvinnurekendum ber skylda að vernda starfsfólk sitt
Þegar kemur að kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi eru lögin afar skýr. Atvinnurekendum ber skylda til að vernda starfsfólk fyrir áreitni, hvort sem er af völdum samstarfsfólks, yfirmanna eða utanaðkomandi aðila, svo sem viðskiptavina eða þeirra sem þiggja þjónustu af hendi starfsfólks. Atvinnurekendum ber einnig að bregðast hratt við kvörtunum og tryggja góða líðan þess sem kvartar, hvort sem athugun leiðir í ljós að um áreiti hafi verið að ræða eða ekki.

BSRB, ASÍ, BHM, KÍ, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa hafa gefið út bækling þar sem farið er yfir ýmis atriði tengt kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Hægt er að sækja bæklinginn rafrænt á íslensku, ensku og pólsku.