21. febrúar 2022
Stofnun ársins og málþing á næsta leyti
![Stofnun ársins og málþing á næsta leyti - mynd](/library/Myndir/Frettamyndir/2022/SAM_StofnunArsins2021_2560x1600.jpg?proc=frontPage)
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu hefur staðið fyrir Stofnun ársins síðan 2006. Nú í ár verða niðurstöður könnunar Stofnun ársins kynntar 16. mars nk. við hátíðlega athöfn á Hilton Nordica hóteli. Þar verða verðlaunahafar heiðraðir, viðurkenningar veittar og málþing sett í framhaldi um mannauðsmál undir heitinu, Vellíðan og vöxtur með betri vinnutíma.
Í kjölfar þess verða allar upplýsingar aðgengilegar um könnunina Stofnun ársins og þær stofnanir sem eru með alla starfsmenn í könnuninni fá skýrslur sendar með þeirra niðurstöðum.