Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

5. september 2022

Morgunverðafundir Sameykis hefjast

Allt félagsfólk velkomið á fundina en nauðsynlegt er að skrá sig.

Haldnir verða félagsfundir fyrir félagsfólk í Sameyki um allt land í haust. Um er að ræða morgunverðafundi, en í sumum tilfellum á landsbyggðinni verða haldnir hádegisverðafundir.

Efni fundanna eru kjaramál, áherslur ræddar fyrir næstu kjarasamninga og reynsla fengin af síðustu kjarasamningum, hópavinna og lýkur svo á skilum úr hópavinnu og samantekt. Fyrsti fundurinn hefst 6. september klukkan kl. 8:10 í félagamiðstöðinni á Grettisgötu 89.

Sjá má fundartíma á vef Sameykis. Allt félagsfólk velkomið á fundina en nauðsynlegt er að skrá sig, sjá hér.