3. nóvember 2022
Umsóknir í Styrktarsjóði fyrir árið 2022 þurfa að berast fyrir 17. desember
Umsóknir fyrir árið 2022 í Styrktar- og sjúkrasjóð Sameykis og Styrktarsjóð BSRB þurfa að berast í síðasta lagi 17. desember nk.
Allar umsóknir fyrir árið 2022 í Styrktar- og sjúkrasjóð Sameykis og Styrktarsjóð BSRB þurfa að berast í síðasta lagi 17. desember n.k. til að hægt sé að afgreiða þær fyrir áramótin.
Ekki er hægt að ábyrgjast að umsóknir sem berast síðar falli inn á almanaksárið 2022.
Félagsfólk Sameykis getur sótt um styrki vegna fræðslu og heilsueflingar og einnig sjúkradagpeninga. Kynntu þér úthlutunarreglur á vef Sameykis. Athugið að sótt er um styrki á Mínum síðum.
Sjá úthlutunarreglur og hvernig er sótt um hér.