2. mars 2023
BSRB hafnar úreltum aðferðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að ríkisstjórnin verði að grípa til aðgerða í efnhagsmálum þjóðarinnar strax. Segir hún að beita þurfi sértækum tekjuöflunaraðgerðum gegn verðbólgu, auknu aðhaldi á markaði og stuðningsaðgerðum við heimili í vanda.
Hún gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að láta Seðlabankann einan algerlega um hagstjórnina.
„Í stað þess að bregðast við hafa ráðherrar eftirlátið Seðlabankanum algerlega hagstjórnina – sem hefur einungis takmörkuð og almenn tæki til. Þetta hefur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir almenning.“
Sonja segir að fyrirtækin ráði ein verðlagi og stjórnvöld þurfi að tryggja virka samkeppni og neytendavernd á þeim fákeppnismarkaði sem er hér á landi. Vegna vaxtahækkana hækka fyrirtækin vöruverð á nauðsynjavörum og taka ekki þátt í að draga úr verðbólgunni.
„Það eru fyrirtækin sem ákveða verðlag. Hér ríkir fákeppni á mörkuðum með nauðsynjavörur og mun sú staða ekki breytast af sjálfu sér. Stjórnvöld geta og eiga að tryggja virka samkeppni og neytendavernd. Hjá stórfyrirtækjunum er svigrúm til þess að minnka álagningu, sem eykst þó með degi hverjum og veldur aukinni verðbólgu.“
Þá segir hún að ríkisstjórnin þurfi að bæta stöðu ríkissjóðs með tekjuöflun hjá þeim sem hafa svigrúm til þess: hátekjuskatt, bankaskatt, stóreignaskatt, fjármagnstekjuskatt og hærri hlutdeild í tekjum af afnotum auðlinda í eigu þjóðarinnar. Og enn fremur segir hún í grein sinni að ríkisstjórnin og Seðlabanki eiga að bera ábyrgð á hagstjórn landsins, en í stað þess virðist sem þeir aðilar beina sjónum sínum að launafólk sem virðist eitt eiga að bera stöðugleikann á herðum sér.
„BSRB hefur bent á að ríkisstjórnin þurfi að bæta stöðu ríkisfjármála með tekjuöflun hjá þeim sem sannarlega hafa svigrúm til að leggja meira af mörkum til samneyslunnar. Þar má nefna hátekjuskatt, stóreignaskatt, bankaskatt, hækkun fjármagnstekjuskatts og hærri hlutdeild almennings í tekjum fyrir afnot á sameiginlegum auðlindum. Verðbólga er nú í tveggja stafa tölu og því þarf að grípa til ráðstafana strax en ekki bíða næsta fjárlagaárs. [...] Ríkisstjórn og Seðlabanki bera ábyrgð á hagstjórn landsins. Þessir aðilar beina þó oftast sjónum sínum að launafólki sem virðist eitt eiga að bera stöðugleikann á herðum sér.“
Lesa má grein formanns BSRB hér.