Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

13. apríl 2023

Kjarasamningur við Orkuveituna undirritaður

Samninganefndir aðila eftir undirritun samkomulagsins.

Samkomulag um framlengingu og breytingu á kjarasamningi milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Orkuveitu Reykjavíkur var undirrtað upp úr kl. 16 í dag. 

Kynningarfundur um kjarasamninginn verður haldinn á Teams þriðjudaginn 18. apríl kl. 11:00. Á sama tíma  verður opnað fyrir atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn sem mun standa yfir til kl. 12 föstudaginn  21. apríl. Kosning fer fram með rafrænum hætti inn á Mínum síðum og þar mun félagsfólk einnig geta nálgast samninginn undir Mín kjör.