Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

14. apríl 2023

Kjarasamningur við ríkið samþykktur

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Fjármála- og efnahagsráðherra f.h ríkissjóðs lauk kl. 11 í dag.

Kjarasamningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2023 – 31. mars 2024.

Fjöldi á kjörskrá voru 4.506 og greidd atkvæði voru 1.403 eða 31,14%. 1.200 voru samþykkir, eða 85.53%, 11.19% höfnuðu samningnum og 3.28% tók ekki afstöðu.  

Nýr samningur og  launatöflur eru aðgengilegar hér undir Kaup og kjör.