Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

26. apríl 2023

Atkvæðagreiðsla um verkfall starfsfólks í Grunnskóla Seltjarnarness

Á hádegi í dag, miðvikudaginn 26. apríl, hefst atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir vegna kjaradeilu Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu auk tíu stéttarfélaga innan BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslu lýkur kl 12:00 laugardaginn 29. apríl og verða niðurstöður birtar í kjölfarið. Atkvæðagreiðslan fer fram rafrænt og mun berast félagsfólki í Sameyki í tölvupósti. Atkvæðagreiðslan fer fram rafrænt og mun berast félagsfólki í Sameyki í tölvupósti, en einnig er hægt að opna hana hér.

Hjá Sameyki er um að ræða atkvæðagreiðslu um verkfall hjá starfsfólki í Grunnskóla Seltjarnarness og Frístundar. Tímasetningar verkfalla koma fram á atkvæðaseðli.

Á fundi í síðustu viku sagði Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, að í upphafi kjaraviðræðna hefði það verið trú samningarnefndanna að sveitarfélögin myndu sína mikinn samningsvilja að ganga frá kjarasamningum. Þess í stað hafi samninganefndin lent á vegg og að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga vilji að BSRB hópurinn verði af 25% launabreytingum innan ársins sem samanburðarhópar fá í sinn vasa. BSRB félögin leggja mikla áherslu á að gildistíminn sé frá 1. janúar 2023 til að jafnræðis milli starfsmanna sveitarfélaganna sé gætt.

Í fréttatilkynningu frá BSRB til stéttarfélaganna innan bandalagsins segir að Samband íslenskra sveitarfélaga neiti að verða við þeirri sjálfsögðu kröfu að leiðrétta augljósa mismunun á launum starfsfólks sveitarfélaga sem heyrir undir mismunandi kjarasamninga. Það þýðir að félagsfólk hjá sveitarfélögunum eiga að fá að meðaltali 25% lægri launahækkun og verða þannig af um 140.000 krónum sem aðrir hafa þegar fengið í launaumslagið. Um er að ræða fólk sem vinnur hlið við hlið, jafnvel í sömu starfsheitum innan sömu stofnana sveitarfélaga; t.d innan leikskóla, grunnskóla, heimila fatlaðs fólks, íþróttamannvirkja og áhaldahúsa. Slík óbilgirni verður ekki liðin og því er kominn tími til frekari aðgerða.

Sameiginlegar kröfur BSRB félaganna eru eftirfarandi:
• Jöfn laun og kjör tryggð fyrir jafnverðmæt, sömu og sambærileg störf hjá sveitarfélögunum frá 1. janúar 2023

• Launamismunur milli starfsfólks sveitarfélaga og starfsfólks Reykjavíkurborgar verði leiðréttur bæði hvað varðar grunnlaun og aukagreiðslur

• Mismunandi greiðslur til sjóða félagsins frá 2016 - 2023 verði einnig leiðréttar til jafns við aðra

Þitt atkvæði skiptir máli. Sömu laun fyrir sömu störf!