Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

17. maí 2023

Kjarasamningur undirritaður við Vinakot

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, og Dagný Helgadóttir rekstrarstjóri Vinakotstakast takast í hendur eftir undirritun kjarasamningsins.

Samkomulag um framlengingu og breytingu á kjarasamningi milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Vinakot ehf. var undirritað í morgun.

Kynningarfundur um kjarasamninginn verður haldinn á fjarfundi á Teams mánudaginn 22. maí kl. 13:00. Um leið verður opnað fyrir atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn og mun kosningin standa yfir til kl. 12:00 miðvikudaginn 24. maí. Kosning fer fram með rafrænum hætti inn á Mínum síðum og þar mun félagsfólk einnig geta nálgast samninginn undir Mín kjör.

Tenglill á Teams fundinn verður sendur í tölvupósti í dag til félagsfólks í Sameyki sem starfar hjá Vinakoti ehf.