Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

30. maí 2023

Mætum á baráttufund og krefjumst sömu launa fyrir sömu störf

Þriðja vika verkfallsaðgerða BSRB hefst á morgun.

Við hvetjum félagsfólk í Sameyki sem nú eru í verkföllum á Akranesi og Seltjarnarnesi til að mæta á baráttufund BSRB í Bæjarbíói í Hafnafirði kl, 17:30 á morgun miðvikudag. Sýnum samstöðu og krefjumst sömu launa fyrir sömu störf.

Sveitarfélög landsins mismuna starfsfólki sínu, fólki sem vinnur sömu eða sambærileg störf, jafnvel inni á sömu vinnustöðum, í launum. Afleiðingarnar eru, að sumir eiga að sætta sig við 25% minni launahækkun en aðrir. Þannig er starfsfólki gert að horfa upp á það að vinnufélagar þeirra, í nákvæmlega sömu vinnu, fái launahækkun frá 1. janúar, en það sjálft ekki fyrr en 1. apríl.

Þriðja vika verkfallsaðgerða BSRB hefst á morgun en lítið hefur þokast í kjaradeilu bandalagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Félagsfólk í stéttarfélögum innan BSRB hefur þegar samþykkt frekari verkföll í atkvæðagreiðslum og að óbreyttu verður stígandi á verkfallsaðgerðum frá 5. júní samkvæmt aðgerðaráætlun bandalagsins. Náist ekki að semja munu verkföllin samtals ná til að minnsta kosti 2500 starfsfólks í 29 sveitarfélögum. Efling, VR og BHM hafa lýst stuðningi sínum við verkföll BSRB.

Aðgerðaráætun verkfalla BSRB um land allt.