Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

6. júlí 2023

Kjarasamningur undirritaður við Innheimtustofnun sveitarfélaga

Samkomulag um framlengingu á kjarasamningi milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Innheimtustofnun sveitarfélaga var undirritað um kl. 12:00 í dag.

Kynningafundur um kjarasamninginn verður haldinn á Teams mánudaginn 10. júlí klukkan 10:00. Um leið verður opnað fyrir atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn og mun kosningin standa yfir til kl. 15:00 fimmtudaginn 13. júlí. Kosning fer fram með rafrænum hætti hér inn á mínum síðum og þar mun félagsfólk einnig geta nálgast samninginn undir ,,Mín kjör“.

Tenglar á Teams fundina verða sendir í tölvupósti í dag til félagsfólks í Sameyki sem starfar hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga.