26. september 2023
Kjarasamningur við Faxaflóahafnir framlengdur
Kynningarfundur um kjarasamninginn veðrur haldinn með rafrænum hætti á Teams á morgun, miðvikudag 27. september.
Samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi milli Sameykis og Faxaflóahafna sf. var undirritað í morgun. Undirritunin er gerð með fyrirvara um samþykki félagsfólks.
Kynningarfundur um kjarasamninginn veðrur haldinn með rafrænum hætti á Teams á morgun, miðvikudag 27. september, kl. 11:30, og atkvæðagreiðsla verður í kjölfarið.
Tengill á Teams fundinn verður sendur í tölvupósti í dag til félagsfólks í Sameyki sem starfar hjá Faxaflóahöfnum.